Verkefni

Gufunesbryggja

Samkeppnistillaga - 1. Verðlaun

TEYMI: Þorpið vistfélag, Yrki, Environice, Vatnaskil, Eykt, True North, Kjarnasamfélag Reykjavíkur, Elding Adventur at Sea, World Class, exa nordic | STAÐSETNING: Gufunes, Reykjavík | VERKKAUPI: Reykjavíkurborg | MYNDEFNI: Yrki

Fyrstu verðlaun í alþjóðlegri samkeppni á vegum  C40 Reinventing Cities sem eru samtök nær hundrað stórborga um allan heim sem vinna að því að gera borgir sjálfbærar og grænar. 

Af vef Þorpsins: “Hugsunin er að bryggjan verði nokkurs konar félags- og samgöngumiðstöð – þar sem fólk og fyrirtæki tengjast með ýmsu móti. Bryggjur hafa í gegnum tíðina gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi, hvað varðar samgöngur, flutninga, veiðar og fleira. Um allan heim hafa eldri bryggjur orðið segull fyrir menningu og mannlíf.”

“Í samræmi við starfsemina í Gufunesi þar sem kvikmyndageirinn er fyrirferðarmikill eru hugmyndir um að bryggjan hýsi kvikmyndafyrirtæki, auk þess sem þar verði íbúðir, leikskóli sem þjóni hverfinu, matvöruverslun og veitingastaður sem verði að hluta til neðansjávar. Heilsulind sem tengist ströndinni með sundlaug, sjósundsaðstöðu, sánu og hverskonar líkamsrækt. Við bryggjuna gæti einnig verið aðstaða til siglinga á kajökum ofl. “